Björgólfur segir Curbishley og West Ham að herða sultarólina
Björgólfur Guðmundsson hefur gefið fyrirskipun um stórfelldar aðhaldsaðgerðir í rekstri West Ham United en hann tók nýlega við stjórnarformennsku í félaginu af Eggert Magnússyni. Meðal annars hefur hann blásið út af borðinu áform um að byggja nýja æfingaaðstöðu fyrir félagið fyrir um 10 milljónir punda, eða um 1,5 milljarða króna.
Breska dagblaðið The Sun greinir frá því í dag að undanfarna 13 mánuði hafi Alan Curbishley, framkvæmdastjóri West Ham, fengið að eyða 40 milljónum punda, eða um 6 milljörðum króna í leikmannakaup.
Curbishley var að vinna að áætlun um að koma upp nýrri aðstöðu fyrir aðallið félagsins í Rush Green í Barking en nú hefur Björgólfur slegið þau áform út af borðinu og sagt Curbishley að hann verði áfram að gera sér að góðu gömlu, þröngu aðstöðuna í Chadwell Heath.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is