Stærsti bílasamningurinn: Bílaleiga kaupir 900 bíla fyrir 2 milljarða
Bílaleigan ALP, sem er umboðsaðili AVIS og BUDGET á Íslandi, hefur samið við bílaumboðin B&L og Ingvar Helgason um kaup á 900 nýjum bifreiðum og er verðmæti samningsins tæplega 2 milljarðar króna. Allir bílarnir verða afhentir fyrir miðjan júní á þessu ári.
Að sögn Andrésar Jónssonar, upplýsingafulltrúa B&L, er talið er að um sé að ræða stærsta samning sem einn aðili hefur gert um bílakaup hér á landi.
Samningurinn felur í sér að ALP kaupi 440 nýja bíla af gerðunum Hyundai, Renault og Land Rover frá B&L og bætist það við samning um kaup á 460 nýjum bílum af gerðunum Nissan, Subaru og Opel, sem ALP gerði við Ingvar Helgason fyrr í þessum mánuði. B&L og Ingvar Helgason eru í eigu sömu aðila.
Heiðar J. Sveinsson, forstöðumaður sölusviðs B&L, segir að þetta sé verðmætasti bílasölusamningur sem B&L hefur gert. „Við höfum heldur aldrei selt einum aðila jafn marga bíla í einu. En þeir njóta þess líka í verðinu – við gáfum þeim alveg þokkalegan magnafslátt,“ segir Heiðar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is