Sunnudagur 03.02.2008 - 22:51
- Ummæli
()
Þingmenn vilja rýmka reykingabann á veitingastöðum
Nokkrir alþingismenn hyggjast leggja fram frumvarp á Alþingi á næstu dögum um að gera reykingabann á veitingastöðum sveigjanlegra.
Jón Magnússon, alþingismaður, er einn þessara þingmanna og sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, að hann teldi að með reykingabanninu í nýverandi mynd væri gengið fullhart fram og meðalhófs ekki gætt, fyrst reykingar væru á annað borð leyfðar í þjóðfélaginu. Hann teldi að leyfa ætti sérstök reykherbergi á veitingastöðum, aðskilin frá öðru rými, þar sem starfsfólk þurfi ekki að koma meðan reykt er.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is