Þriðjudagur 05.02.2008 - 18:38 - Ummæli ()

Æsispennandi kosninganótt í vændum í Bandaríkjunum

79526190.jpgMilljónir íbúa í tuttugu og fjórum ríkjum Bandaríkanna hafa gengið að kjörborðinu í dag til að velja forsetaefni flokkanna tveggja fyrir forsetakosningarnar í nóvember í haust. Um helmingur fulltrúa á landsþing flokkanna verður valinn í dag. Í nítján ríkjum halda flokkarnir báðir forkosningar. Í þremur til viðbótar kjósa aðeins demókratar og í tveimur öðrum eru það repúblíkanar einir sem velja sinn frambjóðanda.

Líklegt er talið að John McCain fari langt með að tryggja sér útnefningu repúblíkanaflokksins í dag en óvíst er hvoru vegnar betur hjá demókrötum, – Hillary Clinton eða Barack Obama. Obama hefur undanfarið saxað mjög á það forskot sem Clinton hefur mælst með í skoðanakönnunum og nú er svo komið að munurinn er vart talinn marktækur, auk þess sem kannanir dagsins benda til þess að Obama hafi náð góðu forskoti í stærsta ríkinu, – Kaliforníu. Það kann þó að nýtast Clinton vel að stuðningsmenn hennar hafa unnið hörðum höndum að því að fá fólk til að kjósa utan kjörfundar með þeim árangri að kosningaþátttaka í Kaliforníu var orðin 30% áður en kjördagurinn rann upp.

Hillary Clinton kaus í forkosningunum í New York í morgun og notaði tækifærið í viðtali við fréttamenn CNN til þess að senda kjósendum skilaboð. „Margir hafa áhyggjur af því að forsetinn muni ekki hlusta á áhyggjur almennings,“ sagði hún. „Ég vil að fólk viti að ég skil þetta og ég verð til staðar ef fólk fer á kjörstað og kýs mig í dag.“

Obama var bjartsýnn í samtali við NBC-sjónvarpsstöðina í morgun: „Við höfum bætt við okkur miklu fylgi,“ sagði hann. „Það sýnir að skilaboðin frá okkur eru að hitta í mark. Spurningin er fyrst og fremst sú hvort okkur tekst að vinna sigur í nokkrum ríkjum á lokasprettinum.“

Helsti keppinautur John McCain meðal repúblíkana er Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri í Massachusettes. Romney er óskaframbjóðandi hinna íhaldssömustu í flokknum og hann leggur mikla áherslu á að þjappa íhaldsmönnunum saman og gera út á ótta þeirra við að McCain sé óútreiknanlegur og hálfgerður demókrati í dulargervi.

Kannanir benda til að Romney hafi betur í Kaliforníu en í öðrum stærstu fylkjum hefur McCain öruggt forskot. Ný könnun Washington Post og ABC-sjónvarpsstöðvarinnar sýnir að fylgi við McCain mælist 48% meðal repúblíkana á landsvísu, 24% nefna Romney. Mike Huckabee og Ron Paul, sem einnig eru í framboði standa þessum tveimur langt að baki.

McCain eyddi deginum í New York og segist hóflega bjartsýnn á að hann nái að tryggja sér útnefningu flokksins næsta sólarhringinn. „Ég er ánægður með hvað okkur gengur vel – en við gætum átt langa nótt í vændum,“ sagði hann í viðtali við NBC.

Könnun Washington Post og ABC sýnir að Hillary Clinton hefur nú aðeins 4% forskot á Barack Obama á landsvísu. Forskot hennar minnkar dag frá degi. Samkvæmt könnun Reuters frá því í gær hefur Obama náð 13 prósentustiga forskoti í Kaliforníu, – langstærsta ríki landsins.

Það flækir möguleikana á að sjá fyrir þýðingu úrslita dagsins að landsþingfulltrúum demókrata verður skipt milli frambjóðenda eftir reglum sem oft eru býsna flóknar og taka mið af úrslitum í einstökum sveitarfélögum og kjördeildum. Í raun snýst kosningin um val landsþingsfulltrúanna – því það eru þeir sem velja frambjóðendur á flokksþingunum í sumar.

Fyrstu úrslit ættu að berast frá kjörfundi repúblíkana í Westur Virginiu í kvöld. Á miðnætti að íslenskum tíma lokar svo kjörstöðum í Georgia og síðan í öðrum fylkjum hverju á fætur öðru. Klukkan verður hins vegar orðin fjögur að morgni þegar kjörstöðum verður lokað í Kaliforníu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is