Þriðjudagur 05.02.2008 - 10:40 - Ummæli ()

Ók 40 sinnum gegnum Hvalfjarðargöngin án þess að borga

image_cropped.pngHéraðsdómur Vesturlands hefur til meðferðar mál gegn manni sem ákærður er fyrir að aka 40 sinnum í gegnum Hvalfjarðargöngin án þess að greiða gangagjaldið.

Lögreglan á Akranesi segist bíða spennt eftir niðurstöðu málsins því þar reyni í fyrsta sinn á hegningarlagaákvæði gagnvart brotum þeirra sem koma sér undan því að greiða gangagjaldið. Fram að þessu hefur aðeins verið ákært á grundvelli umferðarlaga en að þessu sinni er ákært fyrir fjársvik og til vara nytjastuld.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is