Mánudagur 11.02.2008 - 09:26
- Ummæli
()
Roy Scheider látinn úr krabbameini
Bandaríski leikarinn Roy Scheider er látinn, 75 ára að aldri. Hann lést á litlu sjúkrahúsi í
Little Rock í Arkansas.
Banamein Scheiders var krabbamein sem hann hefur barist við í mörg ár.
Leikarinn var þekktur fyrir hlutverk sín í ýmsum myndum, en kannski eftirminnilegastur sem lögregluþjónninn í Spielberg-myndunum um Ókindina sem herjaði á strandgesti með óhugnanlegum afleiðingum.
Scheiders var tilnefndur til Óskarsverðlauna árið 1971 fyrir aukahlutverk í „The French Connection“ þar sem hann lék með Gene Hackman. Átta árum seinna var hann tilnefndur aftur og þá fyrir hlutverk sitt í „All that Jazz“.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is