Harold Bishop er enginn hommi
Ian Smith, sem leikur Harold Bishop í sápunni sí-vinsælu, Neighbours, kom í veg fyrir það að framleiðendur þáttarins gerðu Harold samkynhneigðan.
Hann var víst margspurður að því hvort honum væri sama um að skrifuð væri sögulína sem byggðist á því að Harold kæmi út úr skápnum, en harðneitaði víst alltaf.
Ian sagði að náið vináttusamband Harolds við Lou, sem leikinn er af Tom Oliver, hefði oft orðið til þess að sögusagnir færu á kreik um kynhneigð hans.
„Það hefur mikið verið talað um þetta,“ sagði hann. „Hann og Lou borðuðu einu sinni salat saman og í Ástralíu þýðir það að maður sé hommi.“
Ian Smith mun vera á förum frá Ramsay-stræti innan tíðar. Hann hefur þegar dregið mikið úr framkomu sinni í þáttunum og allra síðustu senur hans verða sýndar í Ástralíu í næsta mánuði.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is