Miðvikudagur 13.02.2008 - 08:05 - Ummæli ()

Níu þingmenn flytja breytingartillögu um reykingabann

78733407.jpgNíu þingmenn úr þremur flokkum telja að tóbaksvarnarlögin gangi of langt í að takmarka tóbaksreykingar á veitinga- og skemmtistöðum og vilja heimila reykingar í sérstöku herbergi
eða á afmörkuðum svæðum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Flutningsmenn nýrrar tillögu um reykingabann eru Jón Magnússon, Guðjón A. Kristjánsson og Hanna Birna Jóhannsdóttir, Frjálslynda flokknum, Birgir Ármannsson, Illugi Gunnarsson, Jón Gunnarsson, Kjartan Ólafsson og Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki og Bjarni Harðarson, Framsóknarflokki.

Þeir telja í ljósi reynslunnar mikilvægt að lögunum verði breytt og meta tillögu sína þannig að hún geti orðið til að almenn sátt ríki í þjóðfélaginu um markmið tóbaksvarnarlaganna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is