Robbie vill frið fyrir Paris Hilton
Einsetumaðurinn Robbie Williams hefur fengið nýjan nágranna – og er víst ekki ánægður með það.
Það er engin önnur er Paris Hilton sem hefur flutt í götuna hans, aðeins fimm hús í burtu, og Robbie óttast að afdrepi hans í LA verði breytt í skemmtistað.
Paris hefur nú þegar hafist handa við að breyta kjallaranum sínum í eins konar næturklúbb.
„Robbie er urrandi reiður yfir þessu,“ segir málskunnugur. „Hann keyrði framhjá henni um daginn og hundsaði hana gjörsamlega.“
„Hann hefur engan tíma fyrir hana og vill ekki hafa neitt samband á milli þeirra.“
„Hún er byrjuð að breyta kjallaranum sínum í diskótek svo að hún geti haldið áfram að djamma eftir að skemmtistöðum lokar. Ef hávaðinn frá húsinu hennar verður mikill um miðjar nætur á Robbie eftir að verða arfa-vitlaus.“
Það er víst óhætt að segja að Robbie muni ekki skjótast yfir til Paris í kaffi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is