Yfirmaður hlutabréfaviðskipta Kaupþings fékk nóg af Íslendingunum
Jan Petter Sissener, yfirmaður hlutabréfamiðlunar Kaupþings-samstæðunnar og framkvæmdastjóri Kaupþings í Noregi, sagði upp störfum í morgun af persónulegum ástæðum. Uppsögnin var óvænt og er sögð mikið áfall fyrir Kaupþing.
Sissener segir í viðtali við viðskiptablaðið E24 í Noregi í dag, að engin ein ástæða sé fyrir brotthvarfinu. Fosíðufyrirsögn viðtalsins er: „Fékk nóg af Íslendingunum.“ Þar segir Sissener að á lengra tímabili hafi margt smátt gert eitt stórt. Hann segist ekki geta útalað sig beint um ástæðurnar og verði að tala varlega. „Ég get orðað það þannig að það hafi verið sumt sem ekki var búandi við.“
Sissener hefur verið einn af virtustu og þekktustu hlutabréfamiðlurum Noregs og vakti það mikla athygli þegar hann gekk til liðs við Kaupþing árið 2005. Við starfi hans hjá Kaupþingi í Noregi tekur Inger Lisa Egeland. Þess er ekki getið í fréttatilkynningu Kaupþings í dag hver taki við af Sissener sem yfirmaður hlutabréfaviðskipta hjá Kaupþingssamsteypunni.
Fréttaritari Ríkisúvarpsins segir ósætti hafa ríkt meðal verðbréfamiðlara Kaupþings vegna bónusgreiðslna, sem stjórn Kaupþings hafi ákveðið að borga ekki alfarið í peningum eins og venjulega heldur að 20% hluta með hlutabréfum í Kaupþingi. Þetta var talin geta verið bein ástæða þess að yfirmaðurinn sagði upp. Ákvörðun um bónusa var að vænta í þessari viku og giskað á, að þeir gætu numið minnst einum milljarði íslenskra króna.
Sissener segir hins vegar í viðtalinu við E24 að þetta hafi ekki verið átæðan. Ákvörðunin um bónusana hafi verið tekin hjá Kaupþings samstæðunni og að hann hafi stutt hana.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is