Þetta er ekki mitt herbergi
Karl á fertugsaldri var handtekinn í Kópavogi í gær, grunaður um að hafa stolið tölvu.
Tilkynnt hafði verið um þjófnað á tölvu úr fyrirtæki í miðborg Reykjavíkur. Á lögregluvefnum segir að grunur hafi strax beinst að ákveðnum aðila og farið hafi verið að dvalarstað hans.
„Maðurinn var einkar samvinnufús og féllst á að sýna lögreglunni herbergið sitt. Þar var enga tölvu að finna en við nánari athugun kom í ljós að þetta var ekki herbergi mannsins. Það var þó ekki langt undan og raunar í sama húsi. Þegar í hið rétta herbergi var komið blasti við tölvan sem lögreglan leitaði að. Maðurinn bar því þá skyndilega við að þetta væri ekki herbergið hans og bætti við ýmsum útskýringum sem þóttu lítt trúverðugar. Ekki síst í ljósi þess að í herberginu þar sem stolnu tölvuna var að finna, mátti líka sjá nokkrar myndir af hinum samvinnufúsa manni sem og ýmsa pappíra með nafni hans.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is