Laugardagur 16.02.2008 - 11:13 - Ummæli ()

Jón Ásgeir: Bankarnir standa verr en talið er – skoða þarf ESB-aðild

jonasgeir.jpgJón Ásgeir Jóhannesson segir að staða bankakefisins sé mun verri en almennt er talað um og býst við að bankarnir fækki starfsfólki verulega næsta árið. „Það þýðir ekkert að blekkja erlenda aðila sem sjá skuldaálag á bönkunum og skuldaálagið sem er á bönkunum í dag tekur mið af því að þeir séu hreinlega gjaldþrota. Þetta er stórhættulegt fyrir íslensku bankana,“ sagði Jón Ásgeir í viðtali við Markaðinn á Stöð 2 í gær. “ segir Jón. „Ég held að menn geti ekki stungið hausnum í sandinn.“

Jón Ásgeir segir að björt framtíð bankanna hér á landi sé háð aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin eigi að hafa það að markmiði að skoða aðild alvarlega. „Mér finnst svolítið skrítið að ríkisstjórnin skuli segja að málið verði ekki skoðað. Það eru gjörbreyttar aðstæður á síðustu 6-8 mánuðum og enginn getur stungið hausnum í sand og sagst ætla ekki að skoða málin.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is