Starfsgreinasamband frestar viðræðum: Óviðunandi svör frá ríkinu
Starfsgreinasambandið hefur frestað viðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins „þar sem ekki hefur borist viðunandi svar frá ríkisstjórninni um aðkomu hennar að kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins,“ að því er fram kemur í nýrri tilkynningu á heimasíðu Starfsgreinasambandsins.
Til stóð að ganga frá kjarasamningi í dag og var búist við að ríkisstjórnin boðaði aðila vinnumarkaðarins til fundar síðdegis til að skýra frá aðkomu sinni að samningunum. Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar lýstu vonbrigðum með fund með ríkisstjórninni í gærmorgun og töldu að ríkisstjórnin hefði ekki nýtt vel þann tíma sem liðinn er síðan henni var afhent kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar þann 12. desember sl.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa látið í það skína að ríkisstjórnin sé m.a. tilbúin til að auka barnabætur og vaxtabætur, grípa til aðgerða í húsnæðismálum og starfsmenntamálum til að greiða fyrir kjarasamningum en upphafleg krafa verkalýðshreyfingarinnar um sérstakan persónuafslátt fyrir launafólk hefur verið slegin út af borðinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is