Engin evra án ESB – umræða um kosti og galla aðildar nauðsynleg
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hvatti Samtök verslunar og þjónustu í dag til þess að láta sig varða umræðu um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu og sagði þátttöku þeirra í yfirvegaðri umræðu um málið beinlínis nauðsynlega.
Björgvin flutti ávarp á aðalfundi SVÞ, fjallaði um gjaldmiðla- og Evrópumál og sagði: „Enginn kemst hjá því að verða var við vaxandi umræðu um gjaldmiðlamál hér á landi. Hugmyndafræðin að baki evrunni er í raun samofin innri markaðinum enda veldur gengisáhætta auknum viðskiptakostnaði og er því óbein viðskiptahindrun. Nú er hins vegar ljóst að Ísland mun ekki taka upp evru sem gjaldmiðil nema það gangi fyrst í Evrópusambandið. Nú er mikil þörf fyrir yfirvegaða umræðu um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu frá sem flestu sjónarhornum. Samtök verslunar og þjónustu hafa hér hlutverki að gegna og beinlínis nauðsynlegt að þau láti sig þetta mikla álitamál varða.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is