Föstudagur 22.02.2008 - 10:05 - Ummæli ()

Gestir Ashton smitaðir af Lifrarbólgu A?

76596327.jpgAfmælisgestir Ashton Kutcher eiga á hættu að hafa tekið með sér nokkuð óvænt til minningar um tilefnið.

Ashton hélt upp á 30 ára afmælið sitt þann 7. febrúar á veitingastaðnum Socialista í New York, en heilbrigðiseftirlitið hefur síðan gefið út viðvörun um að það kvöld hafi barþjónn smitaður af Lifrarbólgu A verið að vinna.

Lifrarbólga A er sjúkdómur sem getur skemmt eða truflað starfsemi lifrarinnar, og einkennin eru gula, ógleði, lystarleysi, og flensueinkenni.

Sjúkdómurinn smitast ef saur kemst í snertingu við munn, annað hvort beint eða óbeint.

Heilbrigðiseftirlitið hefur hvatt fólk sem sótti staðinn til þess að láta bólusetja sig gegn sjúkdómnum í varúðarskyni, en hann er þó ekki lífshættulegur og gengur yfirleitt sjálfkrafa yfir.

Enn hefur ekkert heyrst varðandi málið frá Ashton, né eiginkonu hans Demi More sem hélt veisluna fyrir hann.

Margt var um gesti í veislunni og þeirra á meðal voru Bruce Willis, Madonna, Kate Hudson, Gwyneth Paltrow, Salma Hayek, Liv Tyler, og Lucy Liu.

Beyoncé var einnig viðstödd, en hún hefur gefið út yfirlýsingu um að hún sé ekki í hættu á að smitast þar sem hún borðaði ekki á staðnum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is