Föstudagur 22.02.2008 - 11:02 - Ummæli ()

Kakkalakki gerir allt vitlaust – þrjátíu reknir af sjónvarpsstöð

kakkalakki1.jpgFyrir áhorfendur vinsælasta kvöldþáttar í Turkmenistan var miðvikudagskvöldið eins og hvert annað kvöld vikunnar.

Þegar fréttamaður hóf svo að lesa fréttir klukkan níu gátu áhorfendur fylgst með hvernig risastór kakkalakki birtist á borðbrún fréttamannsins og rölti alla leið yfir borðið og hvarf.

Þar með hefði átt að vera lokið fimmtán mínútna frægð kakkalakkans, en málið hafði óvæntan eftirmála.

Fréttirnar voru endursýndar klukkan ellefu með kakkalakka og öllu saman, en það var svo ekki fyrr en daginn eftir sem menningarmálaráðuneyti Túrkmenistan frétti af skordýrinu. Þar var brugðist skjótt við og forseti landsins, Kurbanguly Berdymukhamedov, látinn vita, en hann varð arfabrjálaður og rak umsvifalaust þrjátíu starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar.

Þar á meðal voru fréttamenn, tæknimenn, tökumenn og aðstoðarfólk.

Berdymukhamedov hefur verið iðinn við að styrkja tengslin við Vesturlönd og gripið til ýmissa aðgerða til að auka frelsi þegna sinna.

kakkalakki-sefur.jpgNýlega auglýsti hann að netkaffihús yrðu opnuð í höfuðborginni Ashgabat og setti erlend tungumál í námsskrá grunnskólanna.

Í mars síðastliðinum hækkaði hann eftirlaun 100.000 ellilífeyrisþega og afnam bann forvera síns á óperuflutningi og balletsýningum.
Engar skýringar hafa fengist á kakkalakkafælni forsetans, en hann er tannlæknir að mennt og starfaði við það í mörg ár, en lauk einnig meistaragráðu í líffræði frá Moskvuháskóla.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is