Miðvikudagur 27.02.2008 - 00:07 - Ummæli ()

Fimm ár frá því að samkeppni hófst í áætlunarflugi

icelexpr.jpgÍ dag eru fimm ár frá því að samkeppni í áætlunarflugi til og frá Íslandi hófst með því að Iceland Express tók til starfa.

Félagið hóf áætlunarflug til Kaupmannahafnar og London 27. febrúar árið 2003. Frá þeim tíma hefur farþegum félagsins fjölgað ár frá ári og áfangastöðum einnig.

Hjá Iceland Express starfa nú um 150 manns með bækistöðvar í Reykjavík, Keflavík, Kaupmannahöfn, London og Lúxemborg.  Í sumar flýgur félagið til fimmtán áfangastaða og einnig til Kaupmannahafnar frá  Akureyri og Egilsstöðum á sumrin. Meðal nýrra áfangastaða er Varsjá og verður það fyrsta, beina áætlunarflugið milli Íslands og Póllands.  „Síðustu fimm ár hefur mikil uppbygging átt sér stað hjá Iceland Express og munum við halda henni áfram af fullum kraftisegir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express.  „Viðtökur Íslendinga og erlendra ferðamanna við þjónustu félagsins hafa verið frábærar frá upphafi og sýna svo ekki verður um villst  hversu miklu máli það skipti fyrir almenning og íslenska ferðaþjónustu að hér ríki virk samkeppni í millilandaflugi.“

Iceland Express er í eigu Northern Travel Holding. Eignarhaldsfélagið Fons er meðal stærstu eigenda Northern Travel Holding en aðrir eigendur eru FL Group og Sund.

Auk lægra miðaverðs var það nýmæli hjá Iceland Express – miðað við það sem íslenskir farþegar áttu áður að venjast – að „sunnudagareglan“ var ekki í gildi hjá félaginu og leiddi það til lægra verðs á fargjöldum óháð því hvort ferðalagið stóð í skemmri eða lengri tíma.

Í tilefni afmælisdagsins býður félagið 5.000 flugsæti á 6.995 krónur hvert og hefst sala á hádegi í dag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is