Deilur um dómaraskipun – Björn Bjarnason sagður vandamálið
Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, gagnrýndi harðlega á málstofu lagadeildar Háskóla Íslands í gær þær aðferðir sem notaðar eru við skipan dómara hér á landi, þar sem dómsmálaráðherra einn ákveður hver skuli skipaður. Hann vill líta til aðferða sem dönsk stjórnvöld viðhafa við skipan á dómurum hér á landi.
Hrafn Bragason, sem lét af embætti hæstaréttardómara síðastliðið haust og hefur átt sæti í átt sæti í matsnefnd um skipun dómara, sagði í umræðum á málstofunni, að ráðherrar hafðu að mestu fylgt niðurstöðum nefndarinnar og Hæstaréttar „allt þar til núverandi dómsmálaráðherra, [Björn Bjarnason] tók við. Vandamálið að mínu mati er þessi ráðherra,“ sagði Hrafn. Fréttablaðið segir frá þessu á forsíðu í dag.
Eiríkur Tómasson benti á að í þeim Evrópulöndum sem Ísland vilji bera sig saman við fari ráðherrar nær undantekningarlaust eftir tillögum nefnda sem fjalli um umsækjendur. Hér sé hins vegar þróunin að verða sú að það sé ekki lengur meginreglan að dómsmálaráðherra fari að tillögu matsnefndar.
Eiríkur reifaði tillögu að nýju kerfi við skipan dómara hér á landi, sem tekur mið af
danska kerfinu. Sex manna dómnefnd myndi fjalla um umsækjendurna, og gera tillögu til forsætisráðherra. Ráðherra hafi hins vegar möguleika á að ganga gegn vali nefndarinnar og skipa annan hæfan umsækjanda, en þá verði að bera ákvörðun hans undir Alþingi, þar sem þrír fjórðu hlutar þingmanna verði að samþykkja skipan ráðherra. Samþykki Alþingi ekki verði að skipa þann sem nefndin lagði til.
Í Danmörku metur sex manna nefnd umsækjendur og gerir tillögu um hvern skuli skipa. Í nefndinni eiga sæti þrír dómarar, lögmaður og tveir fulltrúar almennings. Ráðherra skipar svo í stöðuna en hann er bundinn af tillögu nefndarinnar.
Róbert R. Spanó, sem var fundarstjóri á málstofunni, sagði málamiðlunartillögu eins og Eiríkur hafi nú sett fram mjög ákjósanlegan kost. Tillagan sé afar vel útfærð og þingmenn ættu að huga vel að henni í framhaldinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is