Fimmtudagur 28.02.2008 - 11:38 - Ummæli ()

Heitasta bringan í Hollywood

matthew.jpgMatthew McConaughey telst hafa flottustu bringuna í Hollywood, samkvæmt tímaritinu In Touch.

Þegar hann stundar líkamsrækt finnst honum best að láta æfingasalinn eiga sig og spókar sig frekar úti í staðinn.

„Ég elska það þegar það er heitt úti,“ segir hann.

„Hvað er betra en að njóta sólarinnar á ströndinni þar sem fæstir eru í skyrtum.“

Matthew sér ekkert að því að láta sjást aðeins í brjóstvöðvana þegar hann hjólar, skokkar, eða tekur armbeygjur á sröndinni.

„Líkami minn telst vel samsettur og það væri rangt af mér að kunna ekki að meta það,“ segir hann.

„Það eina sem mig vantar er apahöfuðið,“ og þá á hann við að bringa hans líkist helst bringunni á King Kong.

„Ég hef ekki hugmynd um hversu oft hafa verið teknar myndir af mér berum að ofan.“

„Mottóið mitt er að ef fólk nær mér þannig þá er það bara þannig.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is