Hver vill vera vinkona Paris?
Paris Hilton hefur aldrei farið leynt með það að hún sakni þess að djamma með fyrrverandi bestu vinkonu sinni, Nicole Richie.
Nicole hefur þó róast upp á síðkastið og er hamingjusöm með kærastanum sínum Joel Madden, og dótturinni Harlow sem hún eignaðist í síðasta mánuði.
Paris hefur þá tekið á það ráð að byrja með tvíburabróður Joels, Benji Madden.
Þau kynntust fyrir nokkrum dögum og hafa þegar sést haldast í hendur í verslunarferðum og þar fram eftir götunum.
Ef allt gengur vel fyrir sig þá eiga Paris og Nicole eftir að enda sem mágkonur.
Ef ske kynni að Nicole verði ekki ánægð með þann ráðahag hefur Paris þó brugðið á það ráð að fara af stað með nýjan raunveruleikaþátt, sem mun byggjast á leit hennar að nýrri vinkonu.
„Paris er orðin þreytt á að allir hati sig og er að leita sér að einhverjum nýjum,“ segir málkunnugur.
„Einhverjum nýjum og kúl sem hún getur treyst.“
Þátturinn verður sýndur annað hvort á MTV eða VH1 seinna í ár, og verður væntanlega beðið með óþreyju.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is