21 árs Breti: Á sjö börn með sjö stúlkum
21 árs gamall Breti, sem varð faðir í fyrsta 13 ára gamall, á nú von á sjöunda barninu sínu með jafnmörgum stúlkum. Hann býr ekki með móðurinni.
Keith Macdonald, býr í Washington í Norðurausturhluta Englands, og er atvinnulaus og borgar því ekki meðlag. Hann segist ekki hafa nein áform um að eignast fleiri börn. Í Norðausturhluta Englands eru barneignir unglinga algengari en í nokkrum öðrum hluta Englands. Þar fæða 5,2% stúlkna barn fyrir 18 ára aldur en landsmeðaltalið er 4,2%. Smokkar seljast líka verr á þessum slóðum en annars staðar.
Keith Macdonald segist kominn með nóg af krökkunum og mamma hans er heldur ekki ánægð. „Mamma er ekki ánægð með alla þessa krakka,“ segir hann á vef BBC. „Hún segir mér að hafa rennilásinn uppi.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is