Þriðjudagur 04.03.2008 - 21:20 - Ummæli ()

Hermenn kasta hvolpi fram af kletti

[liveleak 621_1204615429]

Þetta myndskeið var fjarlægt af YouTube því það þótti of viðurstyggilegt. Ekki hefur enn tekist að staðfesta hvort myndskeiðið er ekta eða sviðsett.  Það virðist sýna bandaríska hermenn úr hersveit landgönguliða í Írak skemmta sér við það að kasta hvolpi fram af klettabrún og gantast með það hversu „andstyggilegt“ það sé.

Ekki er vitað hvort hvolpurinn er lifandi í upphafi myndbandsins eða yfirhöfuð raunverulegur, en hann sést ekki hreyfa sig. Í myndbandinu heyrist ýlfur, sem gæti hafa komið frá honum.

Bandaríkjaher segir myndbandið vera í rannsókn og hefur sent frá sér yfirlýsingu: „Myndskeiðið er hneykslanlegt og skammarlegt og gengur gegn þeim siðferðiskröfum sem gerðar eru til sérhvers landgönguliða. Hegðun sem þessi verður ekki umborin og við munum grípa til viðeigandi ráðstafana.“

Hermaðurinn sem kastar hvolpinum hefur verið nafngreindur. Hann er kominn heim frá Írak. Hvatningar hafa birst um að efnt verði til mótmæla við heimili hans á Hawaii. Þar er símanúmerið ekki lengur virkt og vitað er að manninum og fjölskyldu hans hafa borist morðhótanir.

Viðbrögðin minna óneitanlega á Lúkasarmálið svonefnda hér heima í fyrrasumar.

Frétt MSNBC um málið.

Dæmi um viðbrögð fólks á YouTube hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is