Prófessor í Ísrael: Móses var undir áhrifum ofskynjunarlyfja
Móses var ekki bara hátt upp á Sinaí fjalli þegar hann heyrði Guð þylja upp boðorðin 10, hann var líka hátt uppi vegna neyslu ofskynjunarlyfja. Þetta er a.m.k. niðurstöður rannsókna sem Benny Shannon, prófessor í geðvísindum við Hebrew University í Jerúsalem, birti í heimspekiritinu Time and Mind í vikunni.
Shannon segir að notkun ofkynjunarefna hafi verið snar þáttur í helgisiðum Ísraelsmanna á tímum Biblíunnar. Meðal annars hafi verið notast við efni sem unnið var úr berki akasíutrésins, sem oft kemur fyrir í Biblíunni.
Hann segir efnið hafa hliðstæð áhrif og lyf sem þjóðflokkar í Amazon frumskóginum vinna úr ayahuasca plöntunni og nota við helgiathafnir. Shannon segist sjálfur hafa prófað ayahuasca og hafa upplifað sýnir af andlegum og trúarlegum toga. „Í Bíblíunni er talað um að fólk sjái hljóð og það er dæmigert um áhrifin.“
„Það sem gerðist hjá Móse á Sinaí fjalli var annað hvort yfirnáttúrlegur alheimsviðburður, sem ég hef ekki trú á, eða þjóðsaga sem ég held það hafi ekki heldur verið. Þriðji möguleikinn er atburður sem sameinaði Móse og þjóðflokk Ísraelsmanna undir áhrifum vímuefna,“ sagði Shannon í viðtali við Ríkisútvarpið í Ísrael á þriðjudaginn.
Hann sagði Móse trúlega líka hafa verið undir áhrifum ofskynjunarefna þegar hann sá brennandi runnann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is