Útboðslýsing Skipta: 47,4 milljónir í laun og greiðslur til forstjóra 2007
Laun Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra Skipta, námu 40,8 milljónum króna á síðasta ári, aukagreiðslur rúmum 6,6 milljónum króna og lífeyrisgreiðslur tæpum 11 milljónum króna, samkvæmt því sem fram kemur í útboðslýsingu Skipta (bls. 101) vegna skráningar fyrirtækisins á markað.
Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, fékk 5,5 milljónir króna í laun fyrir stórnarsetu og aðrir stórnarmenn helming þeirrar fjárhæðar.
Laun Kristínar Guðmundsdóttur, fjármálastjóra, námu 21,5 milljónum, auk um 2,9 milljóna í aukagreiðslur. Sævar Þráinsson, sem ráðinn var forstjóri Símans sl. sumar, var með 19,7 millónir í árslaun og um 3,2 milljónir í aukagreiðslur.
Um 2,2 milljarðar hluta, eða um 30% hlutafjár, verða boðnir til sölu í útboði sem fram fer 10-13. mars. Stefnt er að því að selja bréfin á genginu 6,64-8,10. Miðað við það verður aflað 14,7-17,9 milljarða króna. Kaupþing selur allan sinn hlut í fyrirtækinu, eða 27,8%. Auk þess selur Exista 2,2% af hlut sínum og á þá 41,6%.
Mynd af töflu úr skráningarlýsingu þar sem tilgreind eru laun og hlutafáreign stjórnenda og stórnarmanna eru hér til hliðar. Stjórnendur eiga enga kauprétti. Hægt er að lesa töfluna í fullri stærð ef smellt er á hana.
Einnig kemur fram í skráningarlýsingunni að átta millistjórnendur keyptu um 42,8 milljónir hluta í Skiptum, eða um 0,582% af heildarhlutafé fyrir 225 milljónir króna á árinu 2006 og fengu 150 milljóna króna fjármögnun frá félaginu fyrir kaupunum.
Sjá útboðslýsinguna hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is