Fimmtudagur 06.03.2008 - 15:16 - Ummæli ()

Íslendingar vilja náin tengsl ESB og NATÓ við Úkraínu og Georgíu

isg-danmork1.jpgIngibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, er jákvæð í garð þess að Króatíu, Albaníu og Makedóníu verði veitt aðild að Atlantshafsbandalaginu, náist um það samstaða meðal aðildarríkja NATO. Hún lýsti þessu viðhorfi á reglubundnum utanríkisráðherrafundi NATO í Brussel í morgun og ítrekaði einnig mikilvægi náinna samskipta við Georgíu og Úkraínu,  og  lýsti  yfir stuðningi við beiðni Svartfjallalands  og Bosníu-Hersegovínu um nánari tengsl við NATO. Þá hvatti hún til þess að NATO og ESB haldi góðum tengslum við Serbíu.

„Í  umræðum um Afganistan ítrekaði utanríkisráðherra þau órofatengsl sem eru á  milli  friðargæslu, góðrar stjórnsýslu og efnahagsuppbyggingar, og lagði þunga  áherslu  á  mikilvægi heimamanna í öllu uppbyggingarstarfi. Ráðherra kallaði  eftir  bættu  samráði  alþjóðastofnana  í Afganistan undir forystu Sameinuðu  þjóðanna.  Greindi ráðherra frá því að í utanríkisráðuneytinu er nú unnið að gerð þriggja ára áætlunar um áframhaldandi stuðning við friðar- og  uppbyggingarstarf  í Afganistan þar sem megináherslan er á verkefni á sviði mannréttinda, þróunar og friðsamlegrar lausnar deilumála,“ segir í frétt frá utanríkisráðuneytinu.

Dagskrá  fundarins tók mið af leiðtogafundi bandalagsins sem fram fer í Búkarest í næsta mánuði, og var kastljósinu einkum beint að fyrirhugaðri stækkun bandalagsins, samskiptum við ríki utan NATO,  aðgerðum  alþjóðasamfélagsins í Afganistan og stöðunni í Kosovó í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is