Fimmtudagur 06.03.2008 - 12:56 - Ummæli ()

Meirihluti Íslendinga vill evru og aðildarviðræður við ESB

esbflagg.jpgMeirihluti landsmanna vill taka upp evru sem gjaldmiðil á Íslandi.

55,8% vilja taka upp evru en 44,2% vilja halda íslensku krónunni.

Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Samtök iðnaðarins og kynnt var á aðalfundi samtakanna í morgun. Spurt var hvort telur þú æskilegra að halda íslensku krónunni eða taka upp evru sem gjaldmiðil hér á landi.

Karlar eru hlynntari því að taka upp evru eða 60% á móti 51% kvenna. Þeir yngstu og elstu vilja helst halda í krónuna og er stuðningur við evru mestur í aldurshópnum 25-34 ára. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru jákvæðari gagnvart evru og vilja ríflega 60% þeirra taka upp evru. Meirihluti íbúa á landsbyggðinni eða 53% vill hins vegar halda í krónuna.

Capacent Gallup kannaði afstöðu fólks í tveimur könnunum í janúar og febrúar fyrir SI.
Þegar spurt var beint af afstöðu til aðildar: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aðild Íslands að Evrópusambandinu? Voru svörin eftirfarandi í janúar og febrúar:

Svör        janúar   febrúar
Hlynnt      44,1%  49,8%
Andvíg     34,3%  32,8%
Hvorki né 21,7%  17,4%

Þegar spurt er að því hvort að taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið eru niðurstöðurnar hins vegar meira afgerandi. Alls segjast 54% aðspurðra vera hlynntir aðildarviðræðum en 30% andvígir.

Samkvæmt þessu vilja margir þeirra sem eru andvígir aðild að ESB þó hefja aðildarviðræður.

Meðal stuðningsmanna allra flokka nema Vinstri grænna eru þeir fleiri, sem vilja hefja aðildarviðræður heldur en þeir sem eru því móti viðræðum, samkvæmt greiningu SI á niðurstöðunum. Þannig vilja 46,2% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks fara í aðildarviðræður en 39% segjast því andvíg. 50% stuðningsmanna Framsóknarfloksins og 78% hjá Samfylkingunni eru hlynnt viðræðum. Andstaðan er mest meðal stuðningsmanna Vinstri grænna en þó segjast 35% þeirra hlynnt viðræðum.

Kannanirnar eru hér:

Könnun í febrúar

Könnun í janúar


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is