Miðvikudagur 12.03.2008 - 09:58 - Ummæli ()

Geraldine Ferraro: Gott gengi Obama eingöngu vegna þess að hann er svartur

geraldine.jpgTrúlega muna ekki margir eftir Geraldine Ferraro, en hún var fyrst kvenna í
framboði sem varaforseti Bandaríkjanna árið 1988. Á þeim tíma gustaði um Ferraro en síðan hefur lítið til hennar spurst. Þangað til í gær.

Ferraro er eindreginn stuðningsmaður Clinton og sagði í samtali við dagblað í Kaliforníu að gott gengi Obama væri eingöngu því að þakka að hann væri svartur.

„Ef Obama væri hvítur væri hann ekki í þessari stöðu, né heldur ef hann væri kona. Hann ætti að skilja hvað hann er heppinn að hafa komist svona langt á kynþættinum einum saman,“ segir Geraldine.
Orð Geraldine ollu reiði og mótmælum, ekki bara meðal stuðningsmanna Obama, heldur meðal allskyns hópa í Bandaríkjunum.

Það gerist ekki oft að stjórnmálamaður haldi því fram að það að vera svartur í amerískri pólitík sé til bóta í alþjóðlegu samhengi.

Ferraro svaraði mótmælendum í nótt og sagði að ástæðan fyrir mótmælunum væri að hún væri hvít.

„Í hvert skipti sem einhver segir eitthvað um veruleikann og vandamálin sem við stöndum frammi fyrir er hann ásakaður um að vera rasisti,“ segir Geraldine. „Ég er sannfærð um að fólk ræðst á mig af því ég er hvít.“

Kosningastjóri Obamas, David Axelrod, sagði að rasískar árásir væru Hillary Clinton að kenna, hún hefði stundað mjög „aggressíva“ baráttu gegn Obama og segi stuðningsmönnum sínum að þeir megi segja hvað sem er.

Hillary Clinton frábiður sér þó allla ábyrgð á orðum Geraldine Ferraros, en Axelrod finnst það yfirborðskennt og telur að hún ætti að gera meira, eins og að segja stuðningsmönnum sínum að svona geri maður ekki.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is