Fimmtudagur 13.03.2008 - 10:35 - Ummæli ()

31% af heilbrigðisþjónustu einkarekin: Hugtakaruglingur, segir VG

img_5984.jpg31% af heilbrigðisþjónustu hér á landi er á rekin af einkaaðilum en 69% af opinberum aðilum, að því er Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, sagði á Alþingi í gær en VG sakaði ráðherrann um hugtakarugling.

Morgunblaðið segir í dag frá umræðum á Alþingi um svar Guðlaugs Þórs við fyrirspurn Ástu Möller, flokkssystur sinnar. Í svari ráðherrans kom fram að þjónusta sem félagasamtök, sjálfseignarstofnanir, einkafyrirtæki og sjálfstætt starfandi sérfræðingar, þ.á m. tannlæknar, veita væri öll talin einkarekstur og hlutfall einkarekstrar hér á landi hafi farið vaxandi.

Morgunblaðið hefur eftir Álfheiði Ingadóttur, þingmanni VG, að heilbrigðisráðherra virðist ekki vita muninn á einkarekstri, opinberum rekstri og félagslegum rekstri. „Munurinn á þeim rekstri sem félagasamtök sjúklinga, nú eða aldraðra sjómanna, hafa með höndum hér og eiginlegum einkarekstri er sá að einkareksturinn er rekinn í hagnaðarskyni,“ sagði Álfheiður sem sagði allur hagnaður af starfsemi Reykjalundar færi í að styrkja starfsemina enn frekar. Með hugtakaruglingi kæmist ráðherra að þeirri niðurstöðu að endurhæfing væri í 63% tilfella í höndum einkaaðila og hjúkrunarheimili í 73% tilfella.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is