Britney dansar erótískan dans fyrir olíufursta?
Samkvæmt breska slúðurblaðinu, The Daily Star, þá mun Britney fljúga til Dubai á næstunni, til þess að sýna erótískan dans fyrir hóp af arabískum olíufurstum.
Fyrir vikið mun hún fá tvær milljónir punda, en í augnablikinu fær hún úthlutaðan vasapening af föður sínum, sem nemur aðeins 750 pundum á viku.
Það er Sheeraz Hasan, breskur innflytjandi af pakistönskum uppruna og stofnandi paparazzi-umboðsskrifstofunnar Hollywood.tv, sem mun standa fyrir uppákomunni.
Sheeraz stofnaði umboðsskrifstofuna, sem sérhæfir sig í myndum af Britney, með fjárfestingu frá krónprinsinum af Dubai.
Sheeraz á greinilega ekki í vandræðum með að fá fólk til að skilja við peningana sína því hann sannfærði einnig furstana sem um ræðir til þess að borga Britney þessa himinháu upphæð.
Hún mun flytja þeim lagið, Slave 4 You, og dansa kynþokkafulla dansinn sem gerði lagið frægt.
„Ég ætla að fara með Paris Hilton til Dubai – furstarnir sögðu að hún gæti fengið hvaða upphæð sem hún vill – og þar á eftir ætla ég með Britney,“ sagði Sheeraz.
„Hún getur fengið sína eigin eyju.“
„Peningar skipta engu þegar Britney er annars vegar.“
„Þeir munu hugsa vel um hana og sjá til þess að hún verði send aftur til föður síns í LA heilu og höldnu.“
Sheeraz var víst á leiðinni til Mekka þegar hann stoppaði til að fá sér vatn og sá dagblað sem var fullt af fréttum um Britney.
„Það var þá sem ég gerði mér grein fyrir því að köllun mín í lífinu var að helga henni starfsferil minn,“ sagði hann.
„Og nú, með blessun Guðs, má sjá lógóið mitt á AP, Entertainment Tonight og CNN.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is