Sýn og Sirkus ekki lengur til – heita nú Stöð 2 Sport og Stöð 2 Extra
Sjónvarpsstöðin Sýn heitir nú Stöð 2 Sport og Sýn 2 heitir Stöð 2 Sport2 en Sirkus heitir Stöð 2 Extra. Allar sjónvarpsstöðvar 365 verða framvegis kenndar við Stöð 2 en hver með sínu auðkenni.
Fjölvarpið heitir nú Stöð 2 Fjölvarp en við nafn Stöðvar 2 Bíó þarf ekkert að eiga. „Tilgangurinn með þessari nafnabreytingu er að hnitmiða og skerpa á ímynd og markaðsstarfi sjónvarpsstöðvanna en lykillinn að góðum árangri er sterkt og áberandi vörumerki með jákvæða og framsækna ímynd. Það lá því beinast við að kenna allar stöðvarnar við okkar sterkasta vörkumerki,“ segir í frétt frá 365.
Nafnabreytingunni verður fagnað á Stöð 2 Sport í kvöld með því að beinar útsendingar frá Formúlu 1 kappakstrinum hefjast þar en þær hafa undanfarin ár verið á RÚV.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is