Föstudagur 14.03.2008 - 13:15 - Ummæli ()

Magnús Pétursson hættir sem forstjóri Landspítala

magnes-petursson.jpgMagnús Pétursson hættir sem forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss um næstu mánaðamót og Jóhannes M. Gunnarsson hættir sem framkvæmdastjóri lækninga LSH. Við starfi Magnúsar taka sameiginlega þau Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, og Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, munu sameiginlega gegna starfi forstjóra spítalans „þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn,“ að því er segir í fréttatilkynningu þar sem kemur fram að ráðgert sé að niðurstaða um nýjan forstjóra liggi fyrir 1. september.

Í frétt ráðuneytisins segir að Magnús Pétursson hafi ákveðið að láta af störfum í samkomulagi við heilbrigðisráðherra og að hann verði nýjum forstjóra spítalans innan handar eftir að hann hefur verið ráðinn.

Anna Stefánsdóttir hefur um árabil gegnt starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar og Björn Zoëga hefur leyst Jóhannes M. Gunnarsson af sem framkvæmdastjóri lækninga undanfarna mánuði.

Í frétt ráðuneytisins segir að Jóhannes M. Gunnarsson, taki við starfi „sem felur í sér að hafa yfirumsjón með tilteknum þáttum vegna byggingar nýs háskólasjúkrahúss. Jóhannes hefur undanfarið sinnt sambærilegu starfi á vegum LSH og fær leyfi frá starfi framkvæmdastjóra lækninga,“ segir þar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is