Föstudagur 14.03.2008 - 14:16 - Ummæli ()

Tíbet logar í óeirðum – herlög, mannfall

tibet5.jpgTíbet logar í óeirðum og Kínverjar hafa sett herlög í landinu. Skriðdrekar aka um götur höfuðborgarinnar, Lhasa, þar sem harkalegar óeirðir brutust út í morgun.

Um 1.000 manna hópur kastaði steinum að öryggisveitum og hertrukkum kínverska hersins og kveikt var bílum, strætisvögnum og verslunum í miðborginni. Fréttir berast af því að fólk hafi verið flutt á sjúkrahús, sumt alvarlega slasað. Samkvæmt fréttum AFP fréttastofunnar hafa einhverjir látið lífið í átökunum en tala þeirra liggur ekki fyrir.

Í gildi er fréttabann af hálfu stjórnvalda. CNN hefur til dæmis ekki fengið leyfi þeirra til að fara inní landið og fréttir CNN af atburðunum í Tíbet voru truflaðar í útsendingu á meginlandi Kína í dag.

Tíbetskir munkar hófu mótmælin á mánudag til að minnast uppreisnarinnar 1959 gegn kínverskum yfirráðum í landinu og þau hafa farið stigvaxandi alla vikuna. Hundruð munka hafa tekið þátt í mótmælunum og öryggissveitir hafa umkringt þrjú klaustur í Lhasa og m.a. beitt táragasi til að hafa heimil á þeim. Tveir þeirra reyndu að taka eigið líf og a.m.k. 10 munkar hafa verið handteknir.

Vitni sem BBC talaði við sagði að lögregla hefði ráðist að munkunum með barsmíðum.

CNN segir einnig að óbreyttir borgarar af kínverskum uppruna hafi orðið fyrir barsmíðum á götum úti.

Dalai Lama, útlægur andlegur leiðtogi Tíbetbúa, krafðist þess í dag að Kínverjar hættu harkalegum aðgerðum sínum gegn mótmælendum. Evrópusambandið hvatti jafnframt kínversk stjórnvöld til stillingar, svo og talsmaður bandarískra stjórnvalda.

Sjá frétt CNN af atburðunum í Lhasa í morgun.

tibet6.jpg

Búddamunkar innan landamæra Kína hafa einnig mótmælt. Myndin, sem tekin er í dag, er frá borginni Xiahe, í nágrannahéraðinu Gansu, sem stundum er kölluð „Hin Tíbet“.

Myndir – AFP/Nordic Photo


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is