Blogg í Kína: Vesturlandabúar eru heilaþvegnir / Útlagastjórn Tíbeta vill aðstoð SÞ
Bloggsíður í Kína loga af umræðum um ástandið í Tíbet og flestir taka afstöðu á móti Tíbetum.
„Vesturlandabúar vita ekkert um Kína þó þeir séu alltaf að segja okkur að þetta eða hitt sé slæmt,“ segir einn þeirra og rekur söguleg rök fyrir því Tíbet eigi að tilheyra Kína.
„Útlendingar er heilaþvegnir þegar kemur að þessum deilum segir annar og beinir orðum sínum til Tíbeta: Ef þið hagið ykkur vel munum við varðveita menningu ykkar og áherslur, ef þið hagið ykkur illa munum við varðveita menningu ykkar… á safni.
Einstaka tók þó afstöðu með Tíbet og einn segir að hann sé enginn sérstakur Stalínisti og finnist ekki að Tíbet eigi að vera hluti af Kína.
„Einfaldir munkar og einfaldir Tíbetar, vita þeir einu sinni hverjir það eru sem berjast fyrir sjálfstæði Tíbet? Stjórnin verður að skera burt þetta krabbamein og þar getum við byrjað með Dalai Lama,“ segir bloggarinn Song, sem eins og margir fleiri skellir skuldinni á Dalai Lama.
Kína hertók Tíbet árið 1950 en Dalai Lama og fleiri Tíbetar lögðu á flótta árið 1959 þegar Kínverjar fóru um með ofbeldi. Dalai Lama er nú í Indlandi.
Í Peking er því haldið fram að ríkið í Himalaya tilheyri Kína vegna fornra hefða og það er kennt í kínverskum skólum.
Fréttum ber ekki saman um mannfall í uppreisninni en tölur hafa verið nefndar frá tíu upp í hundrað manns og margir slasaðir.
Búddamunkar stóðu í morgun fyrir mótmælum gegn hersetu Kínverja í Tíbet og útlagastjórn Tíbets á Indlandi krefst þess að Sameinuðu þjóðirnar grípi til tafarlausra aðgerða.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is