Fullt út úr dyrum hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, segir mikið um að fólk hringi og leiti ráða og að mjög hafi fjölgað þeim sem leita aðstoðar.
Morgunblaðið segir frá þessu í dag.
Fullbókað er í alla viðtalstíma fram í apríl, en sex starfsmenn vinna hjá ráðgjafarstofunni og sinnir fólki hvaðanæva af landinu.
Ásta segir mikið hringt vegna gengisbundnu lánanna og að greiðslubyrði lánanna, sem hefur aukist að undanförnu, virðist hafa komið mörgum á óvart.
Þá leita margir aðstoðar sem hafa tekið bílalán sem bundin eru myntkörfu.
Ásta segir orðrétt:
„Við höfum vakið athygli á að fjármálafræðslu er almennt mjög ábótavant. Við finnum fyrir vanþekkingu á þessu. Ég efast ekki um að lánastofnanir hafi upplýst fólk um þetta þegar það tók lánin, en það var mikið í umræðunni að það væri mjög hagstætt að taka erlend lán. Þeim fylgir áhætta eins og fylgir líka verðtryggðu lánunum.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is