Ríkisendurskoðun um Kadeco: Óeppileg tengsl ala á tortryggni og draga úr trúverðugleika
Ríkisendurskoðun telur að að samhliða seta Árna Sigfússonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, í stjórn Þróunarfélagsins Keflavíkurflugvallar, og Keilis ehf. , sem keypti eignir af Þróunarfélaginu sé óheppilegt og hið sama eigi við um setu Kjartans Þórs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Þróunarfélagsins í stjórn Keilis ehf. séu óheppilegar. „Það fyrirkomulag getur alið á tortryggni og dregið úr trúverðugleika og réttaröryggi,“ segir Ríkisendurskoðun, sem telur þó ekki tilefni til að ógilda neina eignasölu á vegum Þróunarfélagsins og telur að félagið hafi starfað innan þeirra heimilda sem því voru veittar. Fram kemur að framkvæmdastjórinn hafi verið vanhæfur til að koma að sölu eigna til Keilis en vanhæfið valdi þó ekki ógildingu sölunnar.
Ríkisendurskoðun telur einnig að Þróunarfélaginu hafi borið að bjóða út breytingar á rafmagni þeirra eigna sem Háskólavellir keyptu fyrir 14 milljarða króna en í þeim samningum var kveðið á um að Þróunarfélagið mundi greiða Háskólavöllum tæplega 2 milljarða króna til þess að „annast nauðsynlegar breytingar á rafmagni fasteignanna.“ Ríkisendurskoðun segir að umfang þessa verkefnis og útfærsla á endurgjaldinu hafi verið þess eðlis að félaginu hafi borið að efna til útboðs um þá framkvæmd.
Ríkisendurskoðun skilaði í dag skýrslu um málefni Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf.. Í skýrslunni segir: „Ríkisendurskoðun telur að hagsmuna ríkisins hafi verið gætt við ráðstöfun eigna á svæðinu. Hæstu tilboðum hefur nær undantekningarlaust verið tekið í þær fasteignir sem seldar hafa verið. Í þeim tilvikum að hæstu tilboðum var hafnað var það gert á þeirri forsendu að sala annarra fasteigna hefði þar með ekki gengið eftir og heildarverð seldra fasteigna því lækkað.“
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. fer með umsýslu fasteigna á varnarliðssvæðinu og framtíðarþróun þess fyrir hönd íslenska ríkisins. „Ríkisendurskoðun telur að Þróunarfélagið hafi haft fullar heimildir til að selja eignir ríkisins á fyrrum varnarliðssvæði á Keflavíkurflugvelli án aðkomu Ríkiskaupa og að því sé óskylt að bjóða eignirnar út í samræmi við lög um opinber innkaup,“ segir í skýrslunni, „enda fjalla þau lög fyrst og fremst um opinber innkaup en ekki um sölu eigna í eigu hins opinbera.“
Ríkisendurskoðun telur einnig að fasteignir á svæðinu hafi verið auglýstar með fullnægjandi hætti „þó hugsanlega hefði mátt gera enn betur í þeim efnum.“ Stofnunin gerir athugasemd við hversu langur tími leið frá því að ýmsir bjóðendur gerðu tilboð þar til Þróunarfélagið svaraði þeim.
Um setu Árna Sigfússonar, bæjarstjóra í stjórn Þróunarfélagsins og jafnframt í stjórn Keilis ehf. sem átti viðskipti við Þróunarfélagið segir að Árni teljist til fyrirsvarsmanna beggja félaga en vegna þess „hversu óverulegan þátt Árni átti í sölu fasteigna til Keilis ehf. er þó ekki um vanhæfi að ræða að mati Ríkisendurskoðunar.“
Þá segir: „Það er álit Ríkisendurskoðunar að með hliðsjón af fortakslausu ákvæði 1. töluliðar 3. gr. stjórnsýslulaga hafi Kjartan Þór Eiríksson framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins verið vanhæfur til að taka þátt í undirbúningi og ákvörðunum
um sölu eigna til Keilis ehf., þar sem hann er stjórnarmaður. Þó er ekki hægt að líta svo á að sölusamningur Þróunarfélagsins við Keili ehf. sé ógildur vegna vanhæfis hans. Meirihluti stjórnar Þróunarfélagsins hefur enda lýst því yfir að hann hafi frá upphafi verið samþykkur sölunni. Ríkisendurskoðun brýnir fyrir stjórnendum félagsins að gæta vel að hæfisskilyrðum við meðferð mála, þar á meðal við undirbúning þeirra. Þannig er það mat Ríkisendurskoðunar að samhliða seta Árna Sigfússonar í stjórn Þróunarfélagsins og Keilis ehf. og jafnframt seta Kjartans Þórs Eiríkssonar framkvæmdastjóra Þróunarfélagsins í stjórn Keilis ehf. séu óheppilegar. Það fyrirkomulag getur alið á tortryggni og dregið úr trúverðugleika og réttaröryggi.“
Loks getur Ríkisendurskoðun þess í skýrslu sinni að með hliðsjón af hlutverki Þróunarfélagsins, „eðli þeirra heimilda sem það hefur fengið framselt í sínar hendur frá stjórnvöldum og þeim verðmætum sem því hefur verið falið að koma í verð
sé eðlilegt að stjórn félagsins takmarki óvenju víðtækt umboð framkvæmdastjóra félagsins til að skuldbinda það og tryggi þar með að stjórnin komi að öllum meiriháttar ákvörðunum.“
—-
Sjá skýrslu Ríkisendurskoðunar hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is