Miðvikudagur 26.03.2008 - 15:03 - Ummæli ()

Óttar Guðmundsson um hauskúpumálið: Stóralvarlegt ef rétt reynist

kleppurÓttar Guðmundsson, geðlæknir og höfundur bókar um sögu Kleppspítala, segist aldrei hafa heyrt um að það hafi tíðkast að læknar eða læknanemar hafi fengið beinagrindur af sjúklingum. „Ef þetta er rétt þá er það stóralvarlegt mál að læknanemar hafi fengið beinagrindur og hauskúpur af sjúklingum á Kleppi,“ sagði Óttar í símtali við Eyjuna í dag, þegar borin var undir hann frásögn Sverris Ólafssonar, myndlistarmanns, í samtali við DV í dag af því hvernig höfuðskel af sjúklingi á Kleppi hafi komist í eigu föður Sverris og síðan Sverris sjálfs.

„Ég rakst ekki á neitt í mínum rannsóknum sem rennir stoðum undir þetta, það kemur mjög á óvart ef þetta er rétt,“ sagði Óttar í símtali við Eyjuna en hann var þá staddur á bökkum Genesaretsvatns í Ísrael. Hann sagði þekkja sögur um að menn hafi gefið líkama sinn til krufninga en það hafi aldrei getað endað með því að menn tækju „beinagrindina með sér heim.“

Í smásögunni Lilju eftir Halldór Laxness, sem út kom árið 1933 er frá því sagt að reykvískir læknanemar stálu líki útigangsmannsins til að kryfja. Spurður um hvort sú saga bendi til frjálslegrar umgengni um lík útigangsmanna og ógæfufólks áður fyrr sagðist Óttar alltaf hafa talið að þar væri einungis um flökkusögu að ræða.

DV greindi frá því í dag að hauskúpan sem fannst við Meðalfellsvatn um páskana hafi verið af manni sem kallaður var Björn Grillir, og var umkomulaus sjúklingur á Kleppi á þriðja áratugnum.  Sverrir Ólafsson segir í samtali við blaðið að faðir hans, Ólafur Páll Jónsson, hafi eignast beinagrindina af Birni Grilli þegar hann var við læknisnám “til rannsókna og lærdóms” og segir Sverrir að á þeim tíma hafi verið algengt að líkamar sjúklinga á Kleppi hafi verið “nýttir til læknisvísinda.” DV segir að síðan hafi beinagrindin verið geymd í kassa heima hjá Ólafi Páli en að hann hafi notað höfuðskelina undir bréfaklemmur. Sverrir segist hafa sofið með kassann með beinagrindinni undir rúmi í mörg ár en hann hafi einnig notað hana um tíma sem sælgætisskál.Síðan endaði skelin í kassa sem geymdur var hjá tengdamóður sonar Sverris í hjólhýsi við Meðalfellsvatn í Kjós. Þar var höfuðskelin – sem læknar höfðu sagað af líki Björns Grillis við krufningu – notuð sem öskubakki. Þegar óveður splundraði hjólhýsinu um áramót fauk höfuðskelin á braut og var týnd þar til maður á fjórhjóli ók fram á hana á víðavangi um páskana.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is