Laugardagur 29.03.2008 - 21:11 - Ummæli ()

Evrópunefnd forsætisráðherra tekur til starfa eftir helgi

evropunefnd.jpgNefnd forsætisráðherra um þróun Evrópumála undir tvíhöfða formennsku stjórnarþingmannanna Ágústs Ólafs Ágústssonar og Illuga Gunnarssonar tekur til starfa eftir helgi. Nefndin mun hittast á sínum fyrsta fundi á þriðjudag.

Síðustu daga hefur verið gengið frá tilnefningum í nefndina sem verður skipuð  fulltrúum annarra þingflokka, auk fulltrúa frá ASÍ, BSRB, Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði Íslands.

Nefndin hefur það hlutverk, í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna, að fylgja eftir tillögum Evrópunefndar frá mars 2007 um aukna þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdri Evrópustarfi. Hún á einnig að gera athugun á því hvernig hagsmunum Íslendinga verði best borgið í framtíðinni gagnvart Evrópusambandinu og fylgjast með og leggja mat á breytingar í Evrópu út frá hagsmunum Íslendinga og hafa samráð við innlenda sérfræðinga og hagsmunaaðila eftir þörfum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is