Ókeypis stæði og innstungur fyrir rafmagnsbíla
Orkuveita Reykjavíkur hefur í samstarfi við Reykjavíkurborg, Kringluna og Smáralind sett upp orkupósta á bílastæðum þar sem rafbílaeigendum gefst kostur á að hlaða rafmagnsbíla endurgjaldslaust.
Það voru Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orkuveitunnar, og Gísli Marteinn baldursson, formaður Umhverfis- og samgönguráðs, sem tóku fyrsta orkupóstinn í Bankastrætinu formlega í notkun í dag. Þar lögðu þeir REVA rafbíl Orkuveitunnar, en hann er annar tvegg80ja rafbíla sem Orkuveitan á og notar í sínum daglega rekstri.
Í frétt frá Orkuveitunni segir að markmið framtaksins sé að hvetja íslenska bílaeigendur og íslensk bílaumboð til að kynna sér kosti rafmagnsbíla til notkunar í borgarumferðinni. Orkupóstar Orkuveitunnar eru fimm talsins og komast 10 bílar í hleðslu á þeim. Orkupóstarnir eru staðsettir á bílastæðum Smáralindar og Kringlunnar og í Bankastrætinu og þar þarf rafbílandinn ekki heldur að borga í stöðumæli. Vistvænir bílar fá að leggja ókeypis í 90 mín. hverju sinni í miðbænum. Orkupósturinn er rafmagnsinnstunga í kassa, þannig að orkupósta er að finna í hundruða þúsunda vís um alla borg og allt land. Rafbílaeigendur geta sótt lykla að orkúpóstunum í höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.
Þá segir að sparnaður bifreiðaeiganda af því að reka rafmagnsbíl á borð við þann sem Orkuveitan á miðað við algengan fjölskyldubíl nemur nú um 190 þúsund krónum á ári. Þá er ótalinn minni útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Myndir úr vefmyndavél Eyjunnar:
[picasa 5184258553011475281]
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is