Utanríkisráðherra Finna settur af vegna sms-a til nektardansmeyjar
- Uppfært - Ilkka Kanerva, utanríkisráðherra Finnlands, þarf að segja af sér embætti vegna vafasamra textaskilaboða hans til nektardansmeyjar.
Kanerva er rúmlega sextugur og einhleypur. Hann átti stund með nektardansmeynni í Norður-Finnlandi í vetur og sendi henni síðan SMS skeyti. Í kjölfarið fékk hann hótunarbréf. Skeytin, um 200 talsins, voru nýlega birt í tímaritsgrein.
Kanerva, sem nú er í veikindaleyfi, hefur sagt að hann hafi ekki gert neitt rangt og ætli ekki að segja af sér.
Flokkur hans Þjóðarbandalagið komst hins vegar að þeirri niðurstöðu á fundi í dag að Kanerva nyti ekki lengur trausts og almennrar virðingar og yrði að segja af sér. Ákveðið var að nýr utanríkisráðherra Finnlands verði Alexander Stubb sem hefur átt sæti á Evrópuþinginu. Forseti Finnlands staðfestir skipan hans á föstudag.
Formaður flokksins og fjármálaráðherra, Jyrki Katainen, segir á vefsíðu flokksins að þetta sé erfiðasta ákvörðun sem hann hafi þurft að taka í formennskutíð sinni. Ilkka sé vinur sinn og hann hafi staðið sig frábærlega í starfi utanríkisráðherra.
„Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að Kanerva njóti ekki lengur þess trausts og almennrar virðingar sem þyrfti til að hann héldi áfram að gegna ráðherrastöðu. Í ljósi þessara málavaxta er ljóst að staða hans til að gegna embætti utanríkisráðherra hefur veikst verulega.“
Kanerva lenti í svipaðri fjölmiðlaumfjöllun vegna SMS skilaboða til sem hann sendi fyrirsætum þegar hann var varaforseti finnska þingins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is