Miðvikudagur 02.04.2008 - 11:24 - Ummæli ()

Heather hótar að skemma nýtt ástarsamband Pauls

78104302.jpgPaul McCartney virðist hafa fundið ástina aftur eftir bitran skilnað við Heather Mills.

Hann er nú staddur á Antigua þar sem hann eyðir rómantískum stundum með hinni amerísku Nancy Shevell, 47 ára, en hún er varaforseti fyrirtækisins New England Motor Freight Inc sem faðir hennar stofnaði, og sjálf millljónamæringur.

Það þarf þó engan að undra að Heather Mills virðist síður en svo ánægð með þessa stöðu mála.

Samkvæmt frétt úr breska dagblaðinu The Mirror, er hún í hefndarhug og ætlar sér að skemma sambandið fyrir þeim.

Hún er hrædd um að Paul eignist börn með Nancy og hætti afskiptum af Beatrice, 4 ára, sem hann á með Heather.

„Heather hótar því að hringja í Nancy og skýra fyrir henni hættur þess að eiga í sambandi við Bítil,“ er haft eftir vini.

„Hún hefur staðið í helvíti þar sem almenningur hatar hana og heldur að hið sama geti komið fyrir Nancy.“

„Hún heldur í alvörunni að hún sé að gera Nancy greiða með þessu.“

Lögfræðingur Heather hefur sagt að Heather óski fyrrverandi eiginmanni sínum velfarnaðar í hinu nýja sambandi, en vinurinn segir að sú ummæli hafi verið til þess að fela reiðina sem kraumar undir.

Samkvæmt honum þá finnst Heather hún hafa verið blekkt og svikin þar sem Paul hafði sagt henni að hann og Nancy væru aðeins vinir.

„Hún varð brjáluð þegar hún komst að hinu sanna,“ sagði vinurinn.

„Hún er líka hrædd um að þau ætli að eignast barn – jafnvel þó Nancy eigi ekki langt í fimmtugt – sem muni draga athyglina frá Beatrice.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is