Fær Ísland aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins?
Greiningaraðilar segja möguleika á því að kallað verði eftir aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við Ísland versni lánsfjárkreppan enn frekar.
Í grein breska blaðsins Sunday Telegraph í dag segir að það yrði í fyrsta skipti síðan Bretland naut aðstoðar sjóðsins á áttunda áratugnum sem hann kæmi til aðstoðar þróuðu vestrænu ríki.
Í greininni segir að margir telji sjóðinn úr sér genginn og hann hafi verið afskrifaður af mörgum ráðamönnum þar á meðal Bush, Blair og ráðamönnum Brasilíu og Kína.
Nú sé hann hins vegar hugsanlega að ganga í endurnýjun lífdaga vegna lausafjárkreppunnar. „Það yrði ólíklegasta upprisan frá dögum Lasarusar og sú óhugnanlegasta frá því Rambo snéri aftur,“ segir blaðið.
Sumir telji jafnvel, að haldi enn að fjara undan gengi Bandaríkjadals þurfi sjóðurinn veita fé inn í bandarískskt hagkerfi.
Í greininni segir að ýmsir séu nú byrjaðir að horfa til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Wahington (International Monetary Fund – IMF) sem einskonar dómara í alþjóðafjármálakerfinu. Stofnunin hefur haft sig lítið í frammi undanfarin fimm ár eftir að hún sætti mikilli gagnrýni og þurfti að biðjast afsökunar á slæmri ráðgjöf vegna Asíukreppunnar á níunda áratugnum.
Dominique Strauss-Kahn, fjármálaráðherra Fraklands hefur nú, sem nýr forstjóri sjóðsins, endurskipulagt starfsemina og fært hana til nútímalegra horfs. Sumir líta á hugsanlegt hlutverk sjóðsins í lánsfjárkrísunni núna sem eins konar prófstein á tilvistarþörf hans. Einn viðmælandi nefnir Ísland og Eistland sem dæmi um lönd sem sjóðurinn gæti aðstoðað. Aðrir tala um að sjóðsins verði fyrst verulega þörf ef vandræði dollarans ágerist.
Efnhagsvandræði Íslands vegna lánsfjárkrísunnar eru rakin í greininni og þau sögð dæmigerð fyrir lánsfjárkrísuáhrifin en um leið skólabókardæmi um verkefni sem sjóðurinn hefur tekið að sér.
„Verði íslenska krónan óstöðug gæti Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þurft að grípa inn í og veita Seðlabankanum lán til að styrkja gjaldmiðilinn,“ segir Stephen Lewis, hjá Insinger de Beaufort, við blaðið.
Vorfundur IMF verður haldinn í Washinton í vikunni. Meðal þeirra sem sækja hann eru seðlabankastjórar Bandaríkjanna og Bretlands, Ben Bernanke og Mervyn King og fjármálaráðherrar ríkjanna, þeir Hank Paulson og Alistair Darling.
Mynd (AFP(Nordic Photo) af Dominique Strauss-Kahn, fjármálaráðherra Fraklands forstjóra IMF.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is