Viðskipti Mánudagur 07.04.2008 - 22:45 - Ummæli ()

Baugur hefur selt hluti sína í fjölmiðlum, síma og fjármálafyrirtækjum á Íslandi

baugurlogoorange.jpgBaugur Group hefur selt hluti sína í fjölmiðla-, fjarskipa, fjármála- og fjárfestingarfélögum á Íslandi. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu á morgun.

Söluverðið er sagt 65 milljarðar króna. Kaupendurnir sagðir félög í eigu helstu hluthafa Baugs og Kaldbaks, fjárfestingafélags Samherja.

Fjárfestingafélagið Stoðir Invest, sem er í eigu helstu hluthafa Baugs, kaupir fjölmiðla- og fjarskiptafélögin, þar á meðal 365 miðla og Teymi (Vodafone).

Styrkur Invest er í eigu Kaldbaks ehf., fjárfestingarfélags Samherja, sem á 34%, og helstu hluthafa Baugs, og kaupir hluti Baugs í fjárfestingar- og fjármálafyrirtækjum, þ.m.t. FL Group. Kaldbakur á 34% í Styrk og Baugur Group verður ekki hluthafi í þessum félögum.

Baugur mun hér eftir einbeita sér að smásöluverslun hér á landi.

Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugur Group, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að þeirri endurskipulagningu sem hafist hefði í fyrra væri nú að ljúka. Baugur Group rennir sínum eignarhluta í FL Group inn í Styrkur Invest sem verður að 34% í eigu Kaldbaks og 37% í eigu helstu hluthafa Baugs. Gengi á bréfum í FL Group í þessum viðskiptum er að sögn Gunnars Sigurðssonar 7,28.

Í tilkynningu frá Baugi í gær kemur fram að Þórdís Sigurðardóttir og Eiríkur S. Jóhannsson muni hætta í framkvæmdastjórn Baugur Group. Þórdís var áður framkvæmdastjóri fjölmiðla- og tæknisviðs Baugs en verður nú forstjóri Stoðir Invest. Eiríkur verður forstjóri Styrkur Invest en hann var áður framkvæmdastjóri fjárfestingarsviðs hjá Baugi.

 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is