Laugardagur 12.04.2008 - 14:49 - Ummæli ()

Björgvin farinn til Kína – hyggst ræða Tíbet og mannréttindi

bjorgvin.jpgBjörgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, ætlar að ræða ástand mannréttindamála í Kína, og í Tíbet í opinberri heimsókn sinni í Kína, en ferðalag ráðherrans og föruneytis hans hófst í dag.

Í frétt frá ráðuneytinu er heimsóknin skýrð sérstaklega með því að hún eigi sér langan aðdraganda og sé farin til „að endurgjalda heimsókn starfsbróður ráðherra frá því í júní í fyrra.“

„Íslensk stjórnvöld hafa áður tjáð Kínverjum þá afstöðu sína að það sé þjóðréttarleg skylda Kínverja að virða mannréttindi í Tíbet. Þessi afstaða verður frekar áréttuð í ferðinni og áhersla lögð á hve órjúfanlegum böndum viðskiptafrelsi, upplýsingafrelsi og mannréttindi eru tengd. Af því tilefni hefur verið óskað eftir sérstökum fundi um mannréttindamál með aðstoðarutanríkisráðherra Kína,“ segir ennfremur.  „Viðskiptaráðuneytið hefur haft náið samráð við utanríkisráðuneytið af þessu tilefni og ennfremur kallað fulltrúa Íslandsdeidar Amnesty International og Mannréttindaskrifstofu Íslands á sinn fund. Á fundinum var farið yfir stöðu mannréttinda í Kína og hvernig íslensk stjórnvöld geta haft jákvæð áhrif á stöðu mála og um samfélagslega ábyrgð íslenskra fyrirtækja í Kína.“
„Tilgangur ferðarinnar er m.a. að stofna til frekari viðræðna við kínversk stjórnvöld um sameiginlega viðskiptahagsmuni og treysta viðskiptatengsl Íslendinga og Kínverja,“ segir í frétt frá ráðuneytinu. Auk formlegra samskipta við stjórnvöld verða ýmis íslensk fyrirtæki heimsótt í Hong Kong, Zhongshan og Beijing.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is