Mánudagur 14.04.2008 - 15:56 - Ummæli ()

Hillary skýst langt fram fyrir Obama í Pennsylvaníu

hillarypennsylvania.jpgHillary Clinton hefur óvænt aukið forskot sitt á Barack Obama fyrir forkosningar Demókrata í Pennsylvaníu. Ný könnun American Research Group sýnir að munurinn á milli þeirra er orðinn 20% prósentur, Clinton í vil.

Fyrir aðeins viku síðan sýndi sama könnun hnífjafna stöðu þeirra meðal demókrata í Pennsylvaníu. Forkosningarnar þar fara fram 22. apríl.

Obama lét orð falla um verkamenn og dreifbýlisfólk íPennsylvaníu á föstudag, sem þóttu óheppileg. Hann sagði meðal annars að fólk þarna væri biturt vegna stöðu efnahagsmála. Það héldi dauðahaldi í byssuna sína og biblíuna, og hefði andúð á fólki sem væri ekki eins og það.

Hillary hefur gagnrýnt ummælin harkalega og sakað Obama um menntahroka og  fyrirlitningu á venjulegu vinnandi fólki.

Skoðanakönnun Gallup í gær sýndi þó að Obama heldur enn umtalsverðri forystu á Clinton á landsvísu: 50%-41%.

Kannanir American Research Group undanfarnar vikur:

  Mar 7-8 Mar 26-27 Ap 5-6 Apr 11-13
Clinton 52% 51% 45% 57%
Obama 41% 39% 45% 37%
Einhver annar 1% 2% 4% 2%
Óákveðnir 6% 8% 6% 4%

Forskot Hillary Clinton á Barack Obama:
48% – 44% meðal
  karlkyns kjósenda
64% to 31% meðal kvenna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is