Orkuútrás í borgarstjórn: Fylgja stefnu sem samræmdist ekki lífsýn fyrir fimm mánuðum
„Sjálfstæðismennirnir sem settu allt í loft upp í október s.l. vegna útrásarverkefna Orkuveitunnar fara nú fremstir í flokki í að fylgja eftir þeirri stefnu sem samræmdist ekki grundvallarlífsýn þeirra sjálfra fyrir rétt rúmum 5 mánuðum síðan og sprengdi þáverandi meirihluta,“ segir í bókun Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, á borgarstjórnarfundi í kvöld en þar var stefna meirihlutans í orkuútrás til umræðu í framhaldi af því að Kjartan Magnússon, formaður Orkuveitu Reykjavíkur, og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, undirritaði í Djíbútí, samning um þátttöku OR og REI í virkjunarverkefni þar í landi.
„Útrásarstefna meirihluta F-lista og Sjálfstæðisflokks virðist vera sú sama og mörkuð var í tíð 1. meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks þar sem útrásarverkefni Orkuveitu Reykjavíkur voru sameinuð í fyrirtækinu REI, (Reykjavík Energy Invest),“ segir í bókun Óskars Bergssonar. „Sjálfstæðisflokkurinn hljóp hins vegar frá þeirri stefnu vegna þess að það samræmdist ekki grundvallarhugmyndafræði þeirra að Orkuveita Reykjavíkur sinnti öðrum verkefnum en kjarnastarfsemi. Það samræmdist ekki grundavallarhugsjónum þeirra að blanda saman opinberum rekstri og einkarekstri í áhættusömum samkeppnisgreinum. Núna fer fyrir útrásarfyrirtækinu REI, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann undirritar viljayfirlýsingar um auknar fjárskuldbindingar til útrásarverkefna. Sjálfstæðismennirnir sem settu allt í loft upp í október s.l. vegna útrásarverkefna Orkuveitunnar fara nú fremstir í flokki í að fylgja eftir þeirri stefnu sem samræmdist ekki grundvallarlífsýn þeirra sjálfra fyrir rétt rúmum 5 mánuðum síðan og sprengdi þáverandi meirihluta.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is