Geir H. Haarde ræðir tvíhliða samkomulag í öryggis- og varnarmálum við Kanada
Ísland og Kanada undirbúa gerð tvíhliða samkomulags um samstarf í öryggis- og varnarmálum. Þetta var eitt af því sem Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, fjölluðu um á fundi sínum í Ottawa í dag.
Í frétt frá forsætisráðuneytinu segir að gert sé ráð fyrir að samkomulagið verði undirritað á næstu mánuðum. „Efnislega verður það svipað og samkomulagið við Noreg og sameiginlega yfirlýsingin með Danmörku frá því í fyrra. Þetta er liður í áframhaldandi viðleitni íslenskra stjórnvalda til að efla öryggismálasamstarf á friðartímum við grannríki innan Atlantshafsbandalagsins,“ segir forsætisráðuneytið. Forsætisráðherrarnir ræddu um framkvæmd fríverslunarsamnings EFTA við Kanada og loftferðasamnings Íslands og Kanada. Þá var fjallað um málefni norðurslóða, samstarf á sviði friðargæslu og menningartengsl þjóðanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is