Fimmtudagur 17.04.2008 - 19:01 - Ummæli ()

Oliver litli er fundinn heill á húfi

strakur2.jpgDanska lögreglan tilkynnti síðdegis að Oliver Chaaning, fimm ára drengurinn sem rænt var í gær, hefði verið látinn laus um klukkan 17 í dag að íslenskum tíma.

Hann er heill á húfi.

Menn af kínverskum uppruna hafa verið handteknir vegna málsins og farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim.

Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að mannræningjarnir hafi farið fram á lausnargjald fyrir drenginn.  Líðan drengsins er sögð góð eftir atvikum, en lögreglan segir þó að nauðsynlegt sé að læknar skoði hann áður en fullyrt er að hann sé við góða heilsu.

Þrír grímuklæddir menn rændu drengnum síðdegis í gær þegar móðir Olivers  var að sækja hann á leikskóla.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is