Föstudagur 25.04.2008 - 10:51 - Ummæli ()

Ashton Kutcher með sundfit

80824127.jpgAshton Kutcher er með sundfit á milli tánna – og nei, þetta er ekki gabb úr sjónvarpsþættinum hans Punk’d.

Hann var gestur í breska skemmtiþættinum Friday Night With Jonathan Ross, og viðurkenndi að vera með lítil sundfit.

Asthon er staddur í Bretlandi þessa dagana að kynna nýjustu kvikmynd sína, What Happens in Vegas.

„Ég er með smá sundfit á milli tánna,“ sagði hann.

„Þegar allt annað lítur svona vel út þá verður eitthvað að gefa eftir.“

Hann taldi það svo ekki eftir sér að fara úr skóm og sokkum og sýna á sér fæturna, en þurfti í kjölfarið að verjast ásókn kynnisins, grínistans Jonathan Ross, sem vildi fá að klippa sundfitin burt með skærum.

Þátturinn var tekinn upp í vikunni en verður sýndur í kvöld, og hér má sjá myndir af berfættum Ashton.

Ashton sagði einnig í þættinum að hann væri mjög tilfinningaríkur.

„Ég grét síðast fyrir tólf tímum síðan, þegar ég kvaddi konuna mína áður en ég lagði af stað hingað.“

„Ég á auðvelt með að sýna henni tilfinningar mínar.“

Ashton er, eins og kunnugt er, giftur leikkonunni Demi Moore.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is