Glitnir: Mesta hækkun vísitölu síðan 1989 – Verðbólga í 10,2%
Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs fyrir apríl á mánudaginn kemur, 28. apríl.
Greining Glitnis hefur hækkað fyrri verðbólguspá sína og gerir nú ráð fyrir að hækkun vísitölunnar milli mánaða verði 2% sem er þá mesta hækkun milli mánaða frá árinu 1989.
Gangi spáin eftir mun ársverðbólga mælast 10,2%.
Í verðbólguspá Greiningar Glitnis í byrjun apríl var gert ráð fyrir 1,8% hækkun milli mánaða. „Margt bendir til þess að hækkunin verði meiri og því endurskoðum við spána nú til hækkunar,“ segir í Morgunkorni Greiningar Glitnis.
„Áhrif vegna gengislækkunar krónunnar vega hvað þyngst en búast má við að þyngsti áhrifahluti hennar komi að mestu fram á þremur mánuðum sem leiðir til örrar verðhækkunar bæði á innfluttum vörum og þjónustu þessar vikurnar,“ segir í Morgunkorni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is