BNA: Þunguðum konum með sykursýki hefur fjölgað um helming á sjö árum
Fjöldi þungaðra kvenna með sykursýki hefur meira en tvöfaldast á sjö árum. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var í Kaliforníu.
Sjúkdómurinn er hættulegur bæði móður og barni.
Á sama tíma hefur tala mæðra á táningsaldri sem haldnar eru sykursýki fimmfaldast.
Ef ekki er fylgst með þunguðum konum sem þjást af sykursýki á meðgöngu aukast líkurnar á fósturláti eða andvana fæddum börnum. Sömuleiðis er börnunum hættara við fæðingargöllum.
„Þetta eru mjög áhættusamar þunganir,“ segir Dr. Florence Brown, sérfræðingur í meðgöngu og sykursýki.
„Allar konur sem eru með sykursýki verða að gera nákvæmar áætlanir um þungun sína.“
Fjölgun sykursýkistilfella meðal þungaðra kvenna endurspeglar fjölgun tilfella sjúkdómsins meðal Bandaríkjamanna. Algengasta tegund af sykursýki er „sykursýki 2″ sem oft er tengd offitu.
Um það bil fimmtán milljónir manna í Bandaríkjunum hafa greinst með sykursýki, og 1,5
milljón nýrra tilfella voru greind í fólki á aldrinum 20 ára og eldra árið 2005.
Sykursýki sem verður til á meðgöngu hverfur oft eftir fæðinguna. Mjög mikilvægt er að fylgjast með konum sem þróa með sér sykursýki á meðgöngunni.
Niðurstöður könnunarinnar voru birtar í dag í the Journal Diabetes Care, a publication of American Diabetes Association, sem stóð fyrir rannsókninni, sem er hin stærsta sinnar tegundar.
„Það er ýmislegt sem konur með sykursýki geta gert áður en þær verða þungaðar sem eykur líkur á því að þær eignist heilbrigð börn,“ segir Jean Lawrence, einn vísindamannanna.
„Þær geta fylgst með blóðsykri og neytt hollrar fæðu. Konur sem eru of þungar ættu að reyna að losna við nokkur kíló áður en þær verðar þungaðar.“
Konurnar eru einnig hvattar atil að vera í sambandi við heilsugæslu þremur mánuðum fyrir fæðingu svo læknar geti hjálpað þeim að halda blóðsykri niðri.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is